Brooke Candy: Er litríkur arftaki Lady Gaga fundinn?

Hátískuheimurinn er hugfanginn af hinni 24 ára gömlu Brooke Candy, sem nýverið veitti glansritinu Vogue viðtal þar sem hún ræðir nýútkominn smell sinn, Opulence, síbreytilega ásjónu sína og hvernig hún hefur tekið tískuheiminn með stormi gegnum frumlega lagasmíði og ögrandi stílbragð.

Nýútkomið myndband við smáskífusmell hennar Opulence, sem sjá má hér að neðan sýnir þannig Brooke í gervi sjúskaðrar vændiskonu sem myrðir svikulan viðskiptavin sinn; þá birtist hún næst sem sólgleraugnaprýdd loðfeldaskvísa sem virðist skora næturlífið á hólm, glimmerskrýddur djöfladýrkandi með klofna tungu að hætti Miley Cyrus er næstur á svið og eru þá fáar sviðspersónur ungu stúlkunnar upptaldar, sem er algert kamelljón.

 

Hér má sjá myndbandið við smellinn Opulence sem tók hinn vestræna tískuheim með stormi: 

[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”CbChHPQhXtM”]

 

En þetta er ekki fyrsti sviðssigur Brooke Candy, sem birtist með sleikipinna að vopni í myndbandi við gullsmellinn Genesis frá Grime, en myndbandið hefur fram til þessa dags fengið einar 19.000.000 flettingar á YouTube og enn tikka tölurnar á vefnum. Frá þeim degi hefur stúlkan verið iðin við tónlistargerðina og hyggur þannig á útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar í janúar á næsta ári.

 

Hér má sjá myndbandið Genesis þar sem Brooke þreytti frumraun sína: 

 

[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”1FH-q0I1fJY”]

 

Þessi hæfileikaríka unga söngkona, sem hefur verið borin saman við ekki minni dívur en Beyoncé, Madonnu og Lady Gaga á augljóslega framtíðina fyrir sér ef fram fer sem horfir á núna, en viðtalið við Brooke, sem birtist í Vogue, má lesa í heild sinni HÉR en gullfallegar ljósmyndirnar hér að neðan tók hátískuljósmyndarinn Dan Martensen fyrir Vogue

SHARE