Cinnamon snúðakaka – Matarlyst

Snúðadeig.

700 gr Hveiti
1 ½ tsk salt
4 tsk þurrger
80 g sykur
4 dl volgt vatn, jafnvel aðeins rúmlega
1 dl olía ég nota isio4

Aðferð

Setjið þurrefni saman í hrærivélarskál og blandið aðeins saman með króknum.
Bætið við vatni og olíu vinnið vel saman með króknum í u.þ.b 5 mín. Látið hefast í 30 mín.
Takið deigið úr skálinni, fletjið út smyrjið fyllingunni yfir, rúllið upp í lengju skerið í hæfilega stóra snúða, smyrjið eldfast form að innan með smjöri, setjið snúðana ofaní og látið síðan hefast í 20 mín.
Hitið ofn í 180 gráður og blástur. Bakið í ca 20 til 25 mín eða þar til gullin brúnir, jafnvel örlítið meir, eða þar til gullin brúnir. Gott er að setja álpappír yfir snúðana ef þeir fara að dökkna mikið.
Ef eitthvað af snúðum er afgans þ.e fara ekki í formið þá hita ég ofninn upp í 220 gráður og blástur raða þeim á bökunnarpappír, og baka í u.þ.b 10-12 mín.

Sjá meira: djupsteiktir-snudar

Fylling
Hráefni

6-7 msk smjör við stofuhita
150 g púðursykur
2 ½ msk kanill
Aðferð
Blandið saman í skál, smyrjið ofaná deigið.

Rjómaostakrem

Hráefni
60 g smjör
4 dl flórsykur
5 msk rjómaostur
2 tsk vanilludropar
Aðferð
Allt sett saman í hrærivélaskálina hrærið saman um stund í u.þ.b 5 mín. Setjið ofaná snúðana þegar þeir eru orðnir volgir.

Einnig er nú afar gott að setja SÚKKULAÐI GLASSÚR ofaná.

Hrikalega góð með kaffinu eða kaldri mjólk!

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here