Dekur og notalegheit á aðventunni

Þó jólin eigi að snúast um ljós og frið þá einkennist aðventan oft að stressi, streitu, verslunarferðum, fjölskylduboðum, skólaviðburðum og fleira svo við fullorðna fólkið eigum það til að vera alveg búin á því þegar aðfangadagur rennur í garð.

Það er þess vegna mjög mikilvægt að muna að staldra aðeins við inn á milli, anda og gefa sér smá tíma líka til að njóta og upplifa aðventutöfrana.

Ein leið gæti verið að fara í einhverskonar líkamsmeðferð hjá Laugum Spa en þar er boðið upp á allskonar frábærar meðferðir sem líta hver annarri betur út. Taktu þér eitt eftirmiðdegi til að dekra við líkamann þinn og leyfa þér að njóta.

Hér eru nokkrar meðferðir sem við mælum 100% með:

Laugar Spa Royal Green andlitsmeðferð (50 mín)

Í þessari andlitsmeðferð er unnið með Laugar Spa vörulínuna sem er 100% lífræn og án allra kemískra efna. Meðferðin hentar fyrir allar húðgerðir, stuðlar að heilbrigði húðar og gefur húðinni góða næringu, mikinn ljóma og endurlífgun. Aðgangur í Baðstofu fylgir.


Laugar Spa súkkulaðinudd

Sætt og ljúffengt heilnudd án allra hitaeininga! Þessi meðferð sem er hreint unaðsleg er sérstaklega hönnuð fyrir gesti Laugar Spa. Í þessari meðferð er notaður 100% hreinn


Slökunarnudd (50 mín)

Djúpt en slakandi nudd þar sem líkaminn er nuddaður uppúr kókosolíu. Sérlega þægilegt og afslappandi nudd sem róar líkama og sál í annríki hversdagsins. Aðgangur að Baðstofu Laugar Spa fylgir.


Draumadekur

Hverja dreymir ekki um að upplifa dásamlegt baknudd með heitri Laugar Spa olíu og geta síðan velt sér yfir í himneskt andlitsbað sem er sérvalið fyrir þig af snyrtifræðingnum þínum. Dásamlegt baknudd og himneskt andlitsbað. Aðgangur að Baðstofu Laugar Spa fylgir.


Heitsteinanudd (50 mín)

Þessi meðferð á rætur að rekja til frumbyggja Norður Ameríku. Steinarnir voru taldir gjöf frá móður jörð og voru þeir notaðir til líkamlegrar og andlegrar heilunar. Í heitsteinanuddi Lauga Spa er nuddað með heitum steinum sem hafa verið baðaðir í orku náttúru Íslands. Meðferðin er einstaklega góð við vöðvabólgu, gigt og stirðleika. Aðgangur að Baðstofu Laugar Spa fylgir.

Auðvitað eru ótal aðrar meðferðir alveg dásamlega og úrvalið er svakalega gott. Við mælum með því að þið kíkið á allar meðferðirnar og þær eru líka tilvaldar í jólagjafir og lítið mál að kaupa gjafabréf.


Sjá einnig:

SHARE