
Gene Hackman (95), eiginkona hans, Betsy Arakawa (63) og hundur þeirra hjóna fundust látin á heimili sínu, í Santa Fe, í morgun. Kom í ljós að þau höfðu öll verið látin í einhvern tíma.
Dóttir Gene, Elizabeth, hefur tjáð sig um það hver dánarorsök hjónanna og hundsins var en hún er talin vera gaseitrun.

Rannsókn á andlátunum stendur enn yfir en þó hefur komið fram að hjónin voru í sitthvoru herberginu þegar þau létust. Gene fannst í forstofuherbergi en Betsy fannst á baðherberginu. Á baðherberginu fundust pilluglös og pillur á víð og dreif um borðið.
Sjá einnig:
- 7 atriði sem ber að forðast í rifrildi við maka

- Hvað segir stærð litla fingurs þíns um þig?

- Stjörnuspá fyrir nóvember 2026

- „Ég hef engu að tapa lengur!“ – Aldís er hætt að hlífa ofbeldismanni sínum

- Lýst eftir Halldóri Inga

- Það eru til leiðir til að takast á við króníska verki














