Dragðu úr skötulyktinni með þessu ráði

Nú fer Þorláksmessa að bresta á með tilheyrandi skötulykt úr næstum hverju húsi.

Ég er alls ekki hrifin af þessari lykt svo ég tali nú ekki um að “menga” heilan stigagang  í fjölbýli á meðan nágranninn er að elda skötuna sína.

Hérna er ég með alveg snilldar ráð til að losna við þessa lykt á ódýran og afar einfaldan hátt.

Sjá einnig: 9 góðar næringarreglur

Þið sem eldið skötu, takið eftir!

Náðu þér í Borðedik, oft kallað glært edik en það er lífrænt þ.e þynnt ediksýra. Settu borðedik í skál og látið standa á eða nálægt ofni. Þú getur útbúið fleiri en eina skál og dreyft um íbúðina eða húsið hjá þér.

Þetta dregur í sig ólykt.

Einnig ef það er vond lykt af skurðarbrettum hjá ykkur þá má skrúbba þau upp úr ediki og muna að skola afar vel á eftir.

Fróðleikur í boði Heilsutorg.is.

SHARE