Dulinn aðdragandi að hjartaáfalli og einkennin sem við hlustum ekki á

Björn Ófeigson ritstjóri vefsíðunar Hjartalíf.is gaf okkur á Hún.is leyfi til þess að birta þessa mikilvægu grein um hvernig þú átt að geta þekkt einkenni sem hugsanlega geta verið aðdragandi af hjartaáfalli. Án efa er þetta mikilvæg og þörf lesning. Við mælum með að þið „like-ið“ facebook síðu þeirra svo þið getið fylgst vel með.

Líklegt má telja að á hverjum degi fái einhverjir einstaklingar einkenni sem stafa frá hjarta en viðkomandi ber ekki kennsl á þau og aðhefst ekkert.

Boðskapurinn í pistlinum er mikilvægur en það eru oft þessir litlu hlutir sem við teljum ekki alvarlega sem telja í aðdraganda hjartaáfalls. Þegar allt er samantekið þá skipta þeir máli og geta jafnvel haft afdrifaríkar afleiðingar.

Aðdragandinn

„Aðdragandinn að hjartaáfallinu mínu var fyrirvaralaus að því er mér fannst í fyrstu. þrátt fyrir að ég færi yfir síðustu mánuði í huganum dagana eftir áfallið gat ég hreinskilningslega sagt að ég hafi alls ekki átt von á þessu enda innan við fertugt á þeim tíma.“

„Ég ferðaðist mikið vegna vinnu minnar árin á undan og álagið var oft mikið. Ég átti erfitt með svefn og undir það síðasta þá fann ég hvernig úthaldið minnkaði og þreytan jókst og mér fannst ég stundum vera að brenna út.“

„Ég var oft með óreglulegan hjartslátt og aukalsög sem lýstu sér þannig að það var eins og hjartað sleppti úr slagi. Þetta var meira áberandi þegar ég var á ferðalögum, mér var þungt fyrir brjósti varð fljótt móður og leið illa. Ég hafði af þessu áhyggjur og fór því til heimilislæknis sem tók blóðprufur.“

„Læknirinn sagði mér að það væri í lagi með blóðprufurnar og taldi hann líklegt að millirifjagigt væri líklega að hrjá mig og álagið og streitan væri bara að segja til sín. Hann gerði lítið úr þessu og skrifaði ristruflanir á kvíða en sá ekki ástæðu til að senda mig til frekari rannsókna.Það er líklegt að það sé í mannlegu eðli að hundsa einkenni sem líkaminn sendir okkur og svo var um mig. Þó mér væri órótt kunni ég ekki að túlka það sem líkaminn var að segja mér. Einkenni geta jú verið snúinn en þess mun meiri ástæða til að kanna málið til hlítar.“

Einkennin mín

  • Mikið álag í langan tíma og mikil streita
  • Úthaldsleysi
  • Mæði
  • Erfitt að ná upp þreki
  • Þyngsl fyrir brjósti
  • Tilfinning fyrir því að mig vantaði súrefni
  • Hjartsláttartruflanir undir álagi og eftir mikið álag
  • Ristruflanir
  • Of hátt kólesteról, 6,9 átta mánuðum fyrir hjartáfall en 7,6 þegar hjartaáfallið reið yfir

Aldurinn segir ekki allt

„Þrátt fyrir að hafa verið einungis 37 ára gamall á þessum tíma hefðu þessi einkenni átt að duga til þess að heimilislæknirinn minn léti athuga hjartað í mér og senda mig til sérfræðings. Sum þessara einkenna voru klárlega viðvörunarbjöllur um að ekki væri allt með felldu. Því miður lét hann hjá líða og ég hafði engar forsendur eða ástæðu til að véfengja hann á þessum tíma. Átta mánuðum eftir blóðprufuna hjá heimilislækninum fékk ég hjartaáfall.

Mig langaði að deila þessu með ykkur því ég veit að það eru margir sem telja sig ekki finna fyrir neinu en þegar grannt er skoðað er eitt og annað sem bendir hugsanlega til að það sé ráð að panta sér tíma hjá hjartasérfræðingi til að láta ganga úr skugga um að allt sé í rauninni með felldu.


Gildin mikilvæg

Það er mikilvægt að þekkja gildin sín þ.e. blóðþrýsting, kólesteról og púls og jafnvel blóðsykur. Það er þess vegna góður siður að fá afrit af niðurstöðum rannsókna sem gerðar eru og sætta sig ekki við að fá engin svör frá læknum heldur halda áfram þar til viðunandi niðurstaða fæst, góð eða slæm.

Verum góð hvort við annað og njótum þess að vera til því það er ekki sjálfsagt.

Björn Ófeigs.

SHARE