Einstök upplifun í sjávarplássi úti á landi – Gæran 2014

Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fimmta árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 14. – 16. ágúst 2014.

Um næstu helgi gefst tónlistarunnendum einstakt tækifæri til þess að taka þátt í árlegum viðburði í litlu sjávarplássi úti á landi. Stór geymslusalur, sem hýsir gærur í stöflum stóran hluta ársins, er í ágúst tæmdur til að rýma fyrir stóru sviði og fólki sem vill skemmta sér og hlusta á góða tónlist. Það eru yfir 100 hæfileikaríkir tónlistarmenn sem skipa þau 24 tónlistaratriði sem koma fram á hátíðinni. Þar á meðal eru heitustu nöfn dagsins í dag ásamt stærstu nöfnum morgundagsins. Sauðárkrókur iðar af lífi þegar Tónlistarhátíðin Gæran stendur yfir og er þetta upplifun sem engin má missa af!

Örfáar breytingar hafa orðið á þeim listamönnum sem koma fram í ár, en þeir eru:

Fimmtudagur:

Hafdís Huld, Sister Sister, Hlynur Ben, Val-kirja og Bergmál.

Föstudagur:

Kiriyama family, Úlfur Úlfur, HIMBRIM, Johnny and the rest, Myrká, The Bangoura band, Sjálfsprottin spévísi, Una Stef, Klassart og Boogie Trouble.

Laugardagur:

Dimma, Reykjavíkurdætur, Nykur, Rúnar Þóris, Kvika, Mafama, Skúli Mennski, Beebee and the Bluebirds og Sunny side road.

Nú er undirbúningur fyrir hátíðina á lokastigi og standa aðstandendur hátíðarinnar ásamt stórum hópi sjálfboðaliða í ströngu að því að vinna þau fjölmörgu handtök sem þarf til. Dagskrá hátíðarinnar teygir sig yfir þrjá daga. Sólóistakvöld verður haldið á fimmtudeginum 14. ágúst á skemmtistaðnum Mælifelli og tónleikarnir á föstudeginum 15. og laugardeginum 16. verða á aðalsvæði hátíðarinnar. Það er 18 ára aldurstakmark en yngri tónlistarunnendur eru velkomnir í fylgd með foreldri/forráðamanni, 12 ára og yngri fá frítt inn.

Miðasala er hafin á midi.is og í Gestastofu Sútarans á Sauðárkróki og kostar einungis 6.500kr inn á hátíðina.

SHARE