Eitt flottasta partý sumarsins – Strigaskór eru skilyrði

Tímamótapartý verður haldið á föstudaginn og eru það Nike, Smirnoff og Somersby sem standa fyrir því.

Norðurljósasalnum í Hörpu verður breytt, aðeins þetta eina kvöld, í einn flottasta klúbb Reykjavíkur þar sem fjölmargir listamenn munu koma fram:

DJ Margeir
John Grant
Ásdís María
Cell7
Unnsteinn Manúel

Það sem gerir þetta kvöld enn einstakara er að allir sem vilja komast inn verða að skarta sínum fegurstu Nike skóm og svo þarf auðvitað að sýna boðskort við innganginn.

Partýið hefst klukkan 21 á föstudagskvöldið 11. júlí og mun standa til klukkan 1 um nóttina. Áfengið verður í boði Smirnoff og Somersby.

Við hjá Hún.is ætlum, í samstarfi við viðburðarhaldara, að bjóða 10 heppnum einstaklingum á viðburðinn og mega þeir taka einn vin með sér. Það eina sem þú þarft að gera til að taka þátt er að skrifa litinn á þínum Nike skóm í athugasemdir hér fyrir neðan og þú ert komin í pottinn.

SHARE