Eplasæla

Þessi eplakaka er afar góð, fljótleg og einföld. Borin fram með ís, þeyttum rjóma og ef vill karamellusósu og kemur frá Matarlyst á Facebook.

Hráefni

4-5 epli t.d Græn, Pink lady, eða Honey crunch.
150 g hveiti
200 g sykur
3 stór egg eða 4 lítil
½ tsk lyftiduft
¼ tsk matarsódi
3-4 tsk kanelsykur
1 ½ msk smjör

Karamellusósa val ég kaupi t.d heita karamellusósu frá Kjörís en hef hana kalda og sprauta yfir kökuna eða bræði karamellur í rjóma.

 

Sjá einnig: 10 hollar uppskriftir fyrir Air Fryer

Aðferð

Hitið ofninn í 190 gráður og blástur.
Skrælið og skerið eplin í ½ og svo í þunnar sneiðar, setjið í eldfast mót.
Sáldrið kanelsykri yfir.
Blandið þurrefnum saman, bætið eggjum út í pískið saman, hellið yfir eplin.
Setjið smjörklípu hér og þar yfir deigið.
Setjið inn í heitan ofninn, bakið í u.þ.b 30-35 mín.
Setjið karamellusósu yfir, berið fram með ís og eða þeyttum rjóma.

SHARE