Er 29 ára og ætlar aldrei að stunda kynlíf aftur! – „Kynlíf er ógeðslegt!“

Lisa Smith frá Buckinhamshire finnst kynlíf vera ógeðslegt. Hún hefur átt 3 elskhuga og hefur búið með tveimur þeirra, en hana langar núna að eignast mann sem hún getur lifað skírlífi með. Ef hana mun einhverntímann langa í börn þá ætlar hún að ættleiða þau.

Var búin með allar afsakanir

„Ég var búin með allar afsakanir til þess að sleppa við að stunda kynlíf og ég einfaldlega vonaði að kærastinn minn myndi ekki sjá að ég var meira að „láta mig hafa það“ að stunda kynlíf með honum, frekar en að njóta þess.“
John, þáverandi kærasti hennar, var hreinn sveinn þegar þau hófu sambandið svo Lisa vonaði að hann vissi ekki hvernig svona hlutum var háttað í öðrum samböndum.
„Við vorum einu sinni ekki búin að stunda kynlíf í nokkra mánuði þegar hann fór að múta mér með gjöfum til að koma í rúmið með honum. Mér fannst það ömurlegt, kveið fyrir forleiknum og mér bauð við kynmökunum sjálfum,“ segir Lisa í DailyMail. „Eina leiðin til þess að ég gæti gert þetta var með því að einbeita mér að einhverju allt öðru.“

Hefur alltaf fundist kynlíf ógeðslegt

Lisa segir að það hafi ekki haft neitt með elskhuga hennar að gera hvernig hún er, hún hafi bara alltaf verið svona: „Ég hef alltaf haft ógeð á kynlífi, hugmyndinni um það og þeirri staðreynd að þjóðfélagið snýst um það.“
Lisa segir að hún hafi átt eðlilega æsku og foreldrar hennar töluðu opinskátt á heimilinu um kynlíf þegar sá tími kom. Hún var ekki misnotuð og ekkert ljótt leyndarmál sé að gera henni kynlíf erfitt. Hún er ekki samkynhneigð og ekkert að henni líkamlega, en hún hefur fengið það staðfest hjá læknum.

Aldrei aftur

Lisa hefur nú gefið það út að hún muni aldrei stunda kynlíf aftur: „Ég ætla ekki að pína mig meira. Mig langar samt mjög mikið að kynnast manni sem getur elskað mig og ég elskað hann, án þess þó að stunda kynlíf.“ Hún vill njóta félagskapar karlmanns og kela og kyssast en alls ekki stunda kynlíf.

Lisa, 21 árs með þáverandi kærasta sínum og ömmu sinni
Lisa, 21 árs með þáverandi kærasta sínum og ömmu sinni
SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here