
Það getur verið alveg sláandi að sjá hvað heimurinn var allt öðruvísi fyrir ekki svo mörgum árum síðan og hversu langt við höfum þó komist í að draga úr fordómum, jafnrétti og fleira, þó svo að vissulega eigum við langt í land á mörgum sviðum.
BoredPanda tók saman lista um óviðeigandi auglýsingar frá seinustu öld og það má glögglega sjá að margt hefur, sem betur fer, breyst.
1. Allir fóru í bólusetningu, nema pabbi
Þarna er verið að tala um bólusetningu fyrir lömunarveiki. Allir höfðu fengið bólusetningu nema pabbinn í fjölskyldunn, því það hafði ýmislegt komið uppá svo hann komst aldrei í bólusetninguna. Hann var því bundinn við „járnlunga“ sem hjálpaði honum að anda.

2. Bráðum verður ákvörðunin um að eignast barn milli þín, eiginmannsins og ráðherrans – 1982

3. Flaskan sem þú getur opnað án hnífs, flöskuopnara og eiginmanns

4. Wonder Sauna heitar stuttbuxur – Um 1970
Buxurnar sem áttu að hjálpa manni að minnka mittismálið og fá grennri læri

5. Ertu ennþá að lemja konuna þína?
Ægilega viðeigandi allt saman. Konan og maðurinn brosa sínu breiðasta og þarna er verið að auglýsa bókina: „Why You Should Beat Your Wife“ sem er skrifuð af manni sem stundar þessa karlmannlegu iðju.

6. Því fyrr sem þú byrjar að drekka kóladrykki, því betra
Þarna var verið að mæla með því að byrja að gefa börnum sínum kóladrykki sem fyrst. Meðal þeirra kosta sem fylgja því að barnið byrji að drekka kóladrykki eru: að börnin verði virkari, þau fái nauðsynlegan sykur og betri persónuleika. Börnin muni líka frekar vera samþykkt í vinahópa þegar þau eldast og verða hamingjusöm til æviloka.

7. Hvítasta málningin á markaðnum – 1935
Blússandi af kynþáttahatri þessi auglýsing.

8. Enn ein rasísk auglýsing – Uppúr 1800
„Af hverju þvær mamma þín þér ekki með Fairy sápunni?“

9. Iver Johnson skammbyssurnar
Mjög svo viðeigandi að lítil stúlka sé að handleika skotvopnið uppi í rúmi, en þær áttu að vera svo öruggar að voðaskot þótti óhugsandi.

10. Love Baby ilmirnir – Því sakleysi er meira sexý en þú heldur – 1975
Ein mest óviðeigandi auglýsing allra tíma.

11. Kellogg’s kornflögurnar – 1916
Það sem er kannski mest athugavert við þessa auglýsingu er hvað barnið er „krípí“

12. Gillette rakvélar – 1950
Byrjaðu snemma að raka þig

13. Allir bestu hlutirnir í lífinu koma í sellófón

14. Opnaðu Oreo köku og sleiktu hana

15. Ullar-nef-húfa
Ekki vera með rautt nef þegar þú hefur verið úti í kuldanum.


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














