Eru Kim Kardashian og Kanye West á Íslandi?

Samkvæmt heimildum DV eru þau Kim Kardashian og Kanye West stödd á Íslandi núna, en miðillinn hermir að einkaþota þeirra hafi lent á landinu í gær. 

DV segir þau Kim og Kanye eða Kamye eins og þau eru oft kölluð í bandarísku slúðurpressunni, hyggja á skoðunarferð um Ísland og heimsókn í Bláa Lónið, en Kim glímir við Psoriasis og því eðlilegt að áætla að frú Kardashian West ætli sér að prófa áhrif kísilsins.

Erfitt er að lesa í stöðuna sem stendur, en Kim birti rétt í þessu ljósmynd á Instagram undir yfirsögninni:

 

I miss him so much! Hurry Home! #tourlife #hurryhome

10467884_409499569193088_876090748_n

Kanye er nú á tónleikaferðalagi um Evrópu og heldur tónleika í Berlín á morgun, þriðjudag og því trúlegt að hjónakornin ásamt föruneyti haldi brátt af landi brott, reynist heimildir DV vera réttar.

 Lesa frétt DV um þau Kim og Kayne: Smellið HÉR

SHARE