Fjölmenni í Bleika boðinu

Hátt í 2000 manns mættu í Bleika boðið á fimmtudagskvöldið en það var haldið í tilefni Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands. 

_32B6344

Í ár er sjónum beint að ristilkrabbameini en árlega deyja 52 Íslendingar af völdum meinsins. Frekari upplýsinga um átakið má finna inni á: http://www.bleikaslaufan.is.

Páll Óskar sá um að koma öllum í rétta gírinn í byrjun kvölds og svo tóku við skemmtiatriði og má þar nefna Amabadama, tískusýningu frá Vero Moda, Vila, Selected, Jack & Jones og Name It. 

SHARE