Fjölskylduerjur í Beckham-fjölskyldunni: Hvað veldur spennunni milli Brooklyn og foreldra hans?

Á síðustu árum hafa fjölmiðlar fjallað um vaxandi spennu innan Beckham-fjölskyldunnar, sérstaklega milli Brooklyn Beckham og foreldra hans, David og Victoria Beckham. Þrátt fyrir að fjölskyldan hafi áður verið talin samheldin, hafa nýlegir atburðir varpað ljósi á möguleg ágreiningsefni og fjarlægð milli aðila.

Upphafið: Brúðkaup Brooklyn og Nicola Peltz

Brúðkaup Brooklyn Beckham og leikkonunnar Nicola Peltz árið 2022 var glæsilegt, en það virðist hafa verið upphafið að spennunni sem er í dag. Það vakti sérstaka athygli að Nicola valdi ekki brúðarkjól hannaðan af tengdamóður sinni, Victoria, heldur frá öðrum hönnuði. Þetta leiddi til vangaveltna um mögulegan ágreining milli þeirra tveggja. Nicola hefur þó lýst því yfir að hún hafi viljað klæðast kjól frá Victoria, en að það hafi ekki gengið upp vegna tímaskorts.

Fjarvera frá fjölskylduviðburðum

Eitt af því sem hefur vakið mesta athygli er fjarvera Brooklyn og Nicola frá stórum fjölskylduviðburðum. Þau mættu ekki í 50 ára afmæli David Beckham, sem haldið var í London, um liðna helgi, með mikilli viðhöfn og fjölda frægra gest. Samkvæmt heimildum höfðu þau beðið um einkafund með David áður en veislan hófst, en því var hafnað. Þau ákváðu því að mæta bara alls ekki.

Nicola Peltz og tengslin við fjölskyldun

Nicola Peltz hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa áhrif á að Brooklyn hafi fjarlægst fjölskyldu sína. Heimildir segja að hún sé ósátt við hvernig David og Victoria koma fram við Brooklyn og hafi kallað þau „sjálfhverf“ og „eitruð“. Þau hjónin hafa reynt að ná sáttum, en samkvæmt heimildum hafa þau nú gefist upp á að reyna að laga sambandið.

Ágreiningur milli bræða

Það er ekki bara spenna á milli Brooklyn og foreldra hans, heldur einnig milli hans og yngri bróður hans, Romeo. Romeo er í sambandi við Kim Turnbull, en hún hafði áður verið að „deita“ Brooklyn líka. Brooklyn hefur lýst því yfir að hann vilji ekki vera í sama herbergi og Kim, sem hefur leitt til þess að hann hefur forðast fjölskylduviðburði sem hún hefur mætt á.

SHARE