Flott fólk á opnun Lavabarsins – Myndir

Lavabarinn var opnaður á fimmtudagskvöldið, að Lækjargötu 6a. Lavabarinn er á þremur hæðum og hafa allar hæðir mismunandi eiginleika. Á miðju hæðinni verður Lounge kokteilstemning, nóg af sætum, stór og góður bar og rosalega kósý sérstaklega ef þig langar bara að setjast niður í drykk með vinunum. Á neðri hæðinni er örlítið minni bar en engu að síður mjög fallegur, svo er dansgólf og á miðju dansgólfinu er DJ-inn staðsettur. Inn af dansgólfinu eru svo salerni og förðunarherbergi fyrir skvísurnar. Á efstu hæðinni eru svo með flöskuborð sem hver sem er getur pantað hjá borð. Það eru salerni á öllum hæðum svo það er ekki mikið um biðraðir á það.

Lavabarinn verður með allskonar frábæra DJ-a að spila hjá sér og er tónlistarstefnan RNB-Beats. Opið verður fimmtudaga, föstudaga og laugardaga. Það er gestalisti til að komast inn fram fyrir röð en að sjálfsögðu eru allir velkomnir.

Hér eru nokkrar myndir frá opnuninni sem  var einstaklega vegleg.

Myndir: http://thorgeir.com/

SHARE