Franskar brauðrúllur

Frumlegt og girnilegt frá Ljúfmeti.com

Franskar brauðrúllur

Franskar brauðrúllur

Franskar brauðrúllur

Franskar brauðrúllur

  • 8 sneiðar af fransbrauði
  • Nutella, hnetusmjör og sulta, eða hvaða fylling sem er
  • 2 egg
  • 3 msk mjólk
  • 3/4 dl sykur
  • 1 stútfull tsk kanil
  • smjör til að steikja upp úr
  • Hlynsíróp til að bera fram með (má sleppa)

Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og fletjið sneiðarnar síðan út með kökukefli. Setjið um 1-2 tsk af fyllingu um 2 cm frá öðrum enda brauðsins í rönd.  Rúllið brauðinu upp og endurtakið með allar brauðsneiðarnar.Franskar brauðrúllur

Franskar brauðrúllur

Hrærið saman egg og mjólk í grunnri skál og leggið til hliðar.

Blandið sykri og kanil saman í annari skál og leggið til hliðar.

Hitið pönnu við miðlungshita og bræðið um 1 msk af smjöri á henni. Veltið brauðrúllunum upp úr eggjablöndunni og setjið þær síðan á pönnuna með samskeitin niður. Steikið á öllum hliðum og bætið smjöri á pönnuna eftir þörfum. Takið brauðrúllurnar af pönnunni og veltið þeim strax upp úr kanilsykrinum. Berið fram heitt eins og það er eða með hlynsírópi.

SHARE