Geitungabit

Þegar geitungar stinga

Fyrir þá sem eru með ofnæmi fyrir eitri geitunga eru þeir vágestir sem ógna lífi og vellíðan. Hlý veðrátta og vaxandi blóma- og gróðurrækt hefur valdið því að geitungum hefur fjölgað. Geitungar eru skordýr af ættbálki æðvængna (Hymenoptera) en til þeirra teljast einnig humlur og býflugur. Þeir geta stungið og valdið umtalsverðum óþægindum og jafnvel lífshættulegum viðbrögðum.

Langalgengast er að fólk fái staðbundið svar með kláða og bólgu en lítill hluti almennings myndar ofnæmi og fær verri svörun á stærra svæði. Þeir sem eru með lífshættulegt ofnæmi fá almenn viðbrögð,  s.k. ofnæmislost sem er lífshættulegt ástand. Talið er að bráðaofnæmi vegna geitunga eða býflugna valdi u.þ.b. 50 dauðsföllum á ári í Bandaríkjunum.

Árásargirnin í hámarki

Húsageitungur.
Þrjár aðrar tegundir geitunga hafa náð fótfestu á Íslandi

Fjöldi geitunga nær hámarki í ágúst/september. Þá er árásargirnin einnig mest og þeir geta stungið við minnsta áreiti. Mesta hættan á geitungastungu er t.d. við vinnu og leik á garðinum. Einnig eru geitungar sérlega sólgnir í sætindi, bjór og vín og geta þeir orðið óbærilega ágengir þar sem fólk er að borða utan dyra í sólríku veðri.

Einstaklingar geta fengið ofnæmi fyrir einni, fleirum eða jafnvel öllum tegundunum æðvængja.  Alvarlegt ofnæmi er oft hægt að geina með blóðprófi. Ef það er neikvætt er nauðsynlegt að gera húðpróf, en þau eru gerð á göngudeild Ofnæmis, lungna og svefns á Landspítala-háskólasjúkrahúsi í Fossvogi.

Almenn ráð

Til að forðast stungur er rétt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Að eyða búum sem eru við heimili.
  • Sýna aðgát við garðvinnu, nota hanska.
  • Matarbiti og drykkir bjóða geitungum heim.  Gosdósir eru sérstaklega varhugaverðar.
  • Geitunga innan dyra má sprauta á hárlakki eða að drepa í einu höggi.
  • Hafa þétt net yfir vögnum barna sem sofa úti.
  • Klæðast hvítum/ljósum fatnaði.
  • Nota ekki ilmefni.
  • Gangið ekki berfætt úti við, klæðist síðum buxum og langerma skyrtum.

Lyfjameðferð

Ef grunur vaknar um stungu hjá einstaklingi með geitungaofnæmi er meðhöndlað strax eins og um ofnæmislost sé að ræða.

  • Gefa strax Adrenalín. Einstaklingur með geitungaofnæmi á alltaf að bera á sér Epi-pen sprautu (Adrenalin) sem honum hefur verið kennt að nota og  andhistamín.
  • Að því búnu á að kalla á aðstoð og leita umsvifalaust á bráðamótttöku.  Allir næmir sjúklingar skulu merktir með Medic Alert merki.
  • Sértæk afnæming með æðvængjueitrinu (hymenopthera) er mjög árangursrík meðferð sem rétt er að gefa sjúklingum sem fá ofnæmislost eftir stungu og reynast vera með jákvæð ofnæmispróf.

Það má segja að einstaklingur með hættulegt geitungaofnæmi sé í stöðugri lífshættu nema að hann gangist undir afnæmismeðferð. Hún breytir því miklu fyrir lífsgæði slíkra einstaklinga. Það er mjög mikilvægt að einstaklingar og heilbrigðisstarfsfólk þekki einkenni ofnæmis fyrir geitungum og að leitað sé eftir greiningu og meðferð.

Grein þessi er fengin af vef Landlæknisembættisins

Höfundur greinar:

Sigurveig Þ. Sigurðardóttir Sérfræðingur í barnalækningum, ofnæmis- og ónæmislækningum Landspítala – háskólasjúkrahúsi

Fleiri heilsutengdar greinar má finna á doktor.is logo

SHARE