Glæsilegt einbýlishús í Mosfellsbæ

Sérstaklega fallegt, 219 fermetra einbýlishús við Súluhöfða í Mosfellsbæ. Í húsinu sem er á einni hæð eru fjögur svefnherbergi, arinstofa, rúmgott eldhús með útgengi út á verönd, helluögð plön og lóð til fyrirmyndar. Draumahús golfarans, við golfvöll Mosfellsbæjar, Hlíðarvöll.

Sjá einnig: Hús í Kópavogi með spa

Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp og gestasnyrtingu.

Holið er miðjan í húsinu og þar er sjónvarpsaðstaða. Gólfefni í andyri, holi og eldhúsi eru flísar en Merbau parket á stofu og herbergjum, gólfhiti er í húsinu.

72eff66ce248621aad06ae573b702752-large

Gengið er niður tvær tröppur í stofuna og þar er fallegur arin og útgengi út á verönd en hátt er til lofts í holi og stofu.

 

Sjá einnig: Krúttleg lítil íbúð í miðborginni

f8a335e8d87b61bc89fec5a1fdf05252-large

Eldhúsið er mjög rúmgott og vel skipulagt, innrétting er með kirsuberjaáferð, mikið skápapláss og morgunverðarborð. Eldhúsið er með gashelluborði og innbyggðri uppþvottavél, einnig er pláss fyrir tvöfaldan ísskáp.

5a6712756a4bec99fafb8dde1818d27e-large

Herbergin eru fjögur, hjónasvítan er með glugga á tvær hliðar og útgengi út á hellulagða verönd, þar er fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, sturtuklefa og hornbaðkari.

Flísalagt vel skipulagt þvottahús, þar er einnig sér bakdyra inngangur. Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúr sem er 40,9 m2. Gangstétt og bílaplan eru hellulögð með hitalögn að hluta, glæsileg timburverönd er fyrir framan og til hliðar við húsið. Lóðin er frágengin og til fyrirmyndar.

Sjáð fleiri myndir af þessari glæsilegu eign:

Nánari upplýsingar veita; Gunnlaugur Þráinsson, s. 844 6447, gunnlaugur@fastborg.is og Úlfar Þór Davíðsson, s. 897 9030, ulfar@fastborg.is, löggiltur fasteignasali,  BORG Fasteignasala.

 

SHARE