Good For You: Selena Gomez í sjóðheitum dúett með A$AP Rocky

Selena Gomez, sem leggur brátt lokahönd á nýja breiðskífu, virðist staðráðin í að sanna fyrir umheiminum að dagar Disney séu að baki og að Gomez sé einmitt orðin fullorðin kona sem veit hvað hún syngur.

Sjá einnig: Selena grætur í nýju lagi: Beitt ofbeldi af Bieber?

Nýjasta útspil Selenu er útgáfa smáskífunnar Good For You þar sem enginn annar en hiphop listamaðurinn A$AP Rocky fer með nokkur erindi sjálfur, en meðal annars má heyra hann fara með línurnar:

Hold on, take a minute, love

Cause I ain’t trying to mess your image up

Lie we mess around in triple cuffs

Stumble round town, pull your zipper up

Smáskífan Good For You er önnur smáskífa Selenu af óútkominni breiðskífu hennar en áður gaf stúlkan út smellinn The Heart Wants What It Wants þar sem hún virtist gera upp tilfinningalegan storminn sem augljóslega ríkti í samskiptum þeirra Bieber.

Sjá einnig: A Man’s Story: A$AP Rocky fetar í fótspor Salvatore Ferragamo

Ágætur sumarsmellur sem lofar góðu og þá er að bíða breiðskífunnar! 

SHARE