GSM-bylgjur hafa veruleg áhrif á lífverur

Rannsókn sem stúlkur í níunda bekk í Danmörku gerðu sýnir að rafbylgjur hafa veruleg áhrif á lífverur.

Börnin ákváðu að ráðast í tilraunina eftir að þau áttuðu sig á því að þau áttu erfitt með að festa svefn þegar þau lögðust til hvílu með farsímann sinn við hliðina á höfðinu. Ef þau náðu að sofna með símann við hliðina á sér áttu þau erfitt með að einbeita sér í skólanum daginn eftir.

Börnin ræktuðu 400 karsafræ í tólf daga. þau skiptu fræjunum síðan í tvo helminga. Annar helmingurinn fór inn í herbergi þar sem voru rafbylgjur eins og farsímar senda frá sér. Hinn helmingurinn var í herbergi sem var án rafbylgja. Svo var beðið í tólf daga og fylgst vel með fræjunum en þau fengu sömu meðhöndlun allan þann tíma.

Niðurstöðurnar urðu sláandi. Í öðru tilfellinu náðu fræin að vaxa og dafna. Í hinu tilfellinu uxu fræin ekki og drápust jafnvel.

Untitled
Fræin í herberginu þar sem engar rafsegulbylgjur voru.
gsm
Fræin í herberginu með rafsegulbylgjunum.

Niðurstöður barnanna hafa vakið athygli víða í Skandínavíu. Þannig hefur til dæmis virtur prófessor við Karólínska stofnunina í Svíþjóð ákveðið að endurtaka tilraunina. Á vef Danmarks Radio kemur fram að engin stúlknanna fimm sem stóðu að rannsókninni sefur nú með GSM símann sér við hlið.

 

Heimild:
Upprunaleg frétt frá Nyheder

Birt á Visir

Birt með góðfúslegu leyfi heilsufrelsi.is

heilsufrelsi_small

SHARE