
Það má eiginlega segja að maður bíður spenntur í hverri viku eftir nýjum “Skets” frá henni Eddu okkar Björgvins. Þvílíkur snillingur sem hún er með þessum bráðfynda karakter Guðfríði sem hún bjó til og notast við til þess að taka upp leiðindar mál í íslensku samfélagi og snúa þeim alveg á hvolf í drepfyndna “sketsa”. Guðfríður er mætt aftur!

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.