Guðrún Árný segist hafa verið fyrirferðarmikið barn

Guðrún Árný Karlsdóttir er söngkona með einstaka rödd og hefur starfað í tónlist frá unga aldri. Hún var viðmælandi minn í hlaðvarpinu Fullorðins á dögunum.

Guðrún bjó um skamma stund í Varmalandi í Borgarfirði og á Skógum undir Eyjafjöllum, en lítur á sig sem Hafnfirðing því hún flutti þangað þegar hún var 12 ára. Hún býr þar í dag og segist aldrei ætla að fara frá Hafnarfirði.

Guðrún á 6 systkini og segir að hún hafi verið fyrirferðarmikið barn, hávær skellibjalla, en hún komst að því þegar hún var með son sinn í greiningarferli að hún væri með ADHD. Sálfræðingurinn bauð henni að koma til sín og í fyrstu hafnaði Guðrún því og sagðist vita að hún væri með ADHD og það væri hennar „super power“. Það var ekki fyrr en sálfræðingurinn spurði hana: „Hvað gerirðu þegar þú gerir mistök?“ að Guðrún ákvað að fara í greininguna.

„Ég vissi ekki hvað ég er biluð fyrr en ég fékk eitthvað við þessu,“ segir Guðrún.

„Ég gaf ekki út músík fyrr en ég fór á lyf. Ég gat bara ekki sleppt tökunum á því sem ég var að gera,“ segir Guðrún og lýsir því hvernig hún fór að vaxa sem listamaður þegar hún fór á lyf og losnaði við fullkomnunaráráttuna.

Guðrún hefur alltaf elskað Celine Dion frá því hún man eftir sér og ætlar að halda tónleika 19. nóvember næstkomandi, þar sem hún mun taka öll bestu lögin í Hörpu.

Við förum um víðan völl í viðtalinu, tölum um Frostrósar-tímann, ástina, erfiðu verkefnin og fleira.

⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Áskrift á 1.090 kr á Fullorðins.is⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠

Fylgdu okkur á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Facebook⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠

Fylgdu okkur á⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ YouTube⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠

Fylgdu okkur á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠

Fylgdu okkur á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠TikTok⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠

SHARE