Hann er karlmaður, þess vegna heldur hann framhjá – Myndband

Pat Robinson sem sér um sjónvarpsþáttinn 700 club í Bandaríkjunum segir að fólk sem lendir í framhjáhaldi geti sjálfu sér um kennt!

Hann er á því að karlmenn haldi framhjá einfaldlega vegna þess að þeir séu karlmenn. Kona kemur til hans og segir frá særindum sínum vegna framhjáhalds eiginmannsins og Pat Robinson segir henni að hún eigi að hætta að hugsa um framhjáhaldið og eigi frekar að einbeita sér af því hvað hún elskar við hann, og sýna honum virðingu, strjúka honum og sýna honum athygli. Hann bendir einnig á það að allt sé fullt af freistingum fyrir karlmenn og í rauninni segir henni að hún þurfi bara að átta sig á því að maðurinn hennar sé jú karlmaður! þessvegna geri hann þessa hluti.

Þessar ráðleggingar mannsins hafa eðlilega ekki fallið í kramið enda einstaklega niðurlægjandi bæði fyrir karlmenn og konur!

[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”k_n-q_0qej4″]

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here