
Hvað gerist þegar uppþvottavélin fer af stað og við heyrum hana vinna hörðum höndum að því að þrífa leirtauið okkar? Það er það sem maðurinn sem gerði þetta myndband vildi vita.
Hann setti myndavél inn í uppþvottavélina, óhreina leirtauið, ljós og svo setti hann vélina af stað. Myndbandið var svo birt á Youtube og það sem hefur vakið mestu athyglina er hvað vatnið sem kemur inn á vélina virðist vera skítugt. Sumir hafa velt því fyrir sér hvort vélin sé tengd við klóakið hjá viðkomandi og aðrir hafa sagst aldrei ætla að nota sína uppþvottavél aftur.
Aðrir skrifuðu athugasemdir um það hversu skítugt leirtauið var, sem hann setti í vélina og benda á að það hafi verið skítugt vatn í botni vélarinnar áður en hún var sett af stað.
Sjá einnig:
- Eru ofnarnir kaldir á heimilinu? – Einfalt ráð sem virkar

- Húsráð: Þetta virkar fyrir allar sturtur og böð

- Húsráð: Settu álpappírskúlu í uppþvottavélina

- 10 fæðutegundir sem ekki þarf að hafa í ísskáp

- 10 ráð við heimilisþrif sem við vildum að við hefðum vitað fyrr

- 8 hlutir sem þú ættir aldrei að sturta niður í klósettið















