Hann tekur mergjaðan dans við ´Uptown Funk´ á hlaupabretti

Skemmtikrafturinn Carson Dean hefur hlotið heimsfrægð á nánast einni nóttu. En þetta stórkostlega dansatriði hans hefur farið eins og eldur í sinu um óraveröld internetsins undanfarið. Þetta er eiginlega alveg geggjað – það er nógu andskoti erfitt að halda jafnvægi á þessu brettum yfir höfuð. Ég yrði að minnsta kosti ferjuð úr ræktinni í líkbíl ef ég myndi reyna slíkt hið sama.

Tengdar greinar:

Hugmyndarík hjón koma brúðkaupsgestum sínum á óvart með sturluðum Footloose-dansi

Taylor Swift tryllist á dansgólfinu út af Kanye West

Gunnar Nelson og félagar dansa við Chandelier

SHARE