Harry prins og Meghan eru ekki enn velkomin á fjölskylduviðburði

Karl konungur í Englandi varð 75 ára á dögunum og fékk í tilefni af því símtal frá syni sínum, Harry. Það sem vakti þó athygli að ýmis smáatriði úr þessu símtali voru fljótt og örugglega komin í fjölmiðla og hafa komið upp getgátur um að Harry og Meghan séu að „mata“ fjölmiðla af upplýsingum, hversu líklegt sem það nú er.

Þrátt fyrir afmæliskveðjur og símtalið frá Harry voru þau skötuhjú ekki boðin í afmælisveislu konungsins en þetta vekur, hjá ákveðnum hópi, von um að sættir séu í augnsýn. Þau eru hins vegar ekki enn sem komið er, ekki boðin á neina fjölskylduviðburði.

SHARE