Hefur þú prófað hugleiðslu?

Hvað eiga Oprah, Óli Stef, David Lynch og Angelina Joile sameiginlegt? ÞAU IÐKA HUGLEIÐSLU!

Hugleiðsluhátíðin Friðsæld í febrúar 2015 er nú haldin í annað sinn af útgáfunni Í boði náttúrunnar. Hátíðin samanstendur af yfir 70 fjölbreyttum og FRÍUM hugleiðsluuppákomum um allt land vikuna 8. til 14. febrúar 2015.

Hátíðin hefst á hóphugleiðslu í Ráðhúsinu á sunnudaginn, 8. febrúar kl 11:00. Opið öllum.

ÞÖGN, KYRRÐ og NÚIÐ

Markmið hátíðarinnar er að vekja áhuga á hugleiðslu og mikilvægi þess að vera til staðar hér og nú! Friðsæld í febrúar er ætlað að vekja athygli á því að hugleiðsla er fyrir ALLA, ekki aðeins einhvern útvalinn hóp.

Þeim fer fjölgandi sem áhuga hafa á að kynnast hugleiðslu af eigin raun og er viðburðinum ætlað að kynna það sem í boði er og kveikja áhuga hjá enn fleirum. Vikan er þó ekki einungis fyrir nýja hugleiðsluiðkendur heldur getur einnig nýst sem innblástur fyrir þá sem hafa áður iðkað hugleiðslu, til að gefa aðeins í eða prufa nýjar aðferðir.

Friðsæld í febrúar er árlegur viðburður þar sem athygli er beint að þeim ávinningi sem í kyrrðinni fellst og einnig í mættinum sem fylgir því að hugleiða í hóp. Með tíð og tíma er stefnan að litið sé á iðkun hugleiðslu sem sjálfsagðan hlut enda ávinningur hennar margþættur.

 

UM LAND ALLT: Reykjavík, Garðabær, Hafnafjörður, Hveragerði, Selfoss, Hella, Vestmannaeyjar, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Akureyri, Ólafsfjörður.

DÆMI UM VIÐBURÐI:

Gong hugleiðsla,
Yoga nidra
Nútvitund,
Float á seltjarnanesi
Dans hugleiðsla
Zen hugleiðsla
Hugleiðsla í hádeginu alla daga

ALLIR VIÐBURÐIR ÓKEYPIS!

Friðsæld í febrúar er á Facebook og á heimasíðu Í boði náttúrunnar

Merki_mynd

 

 

Tengdar greinar:

Jógahjartað: „Draumurinn sá að hugleiðsla verði sjálfsagður hluti af skólastarfi barna“

Nokkrar góðar náttúrulegar leiðir til að sofna án þess að nota svefnlyf!

SHARE