Heimagert ravioli með spínati og ricotta fyllingu

Hafið þið prófað að gera ykkar eigið pasta? Þetta er alls ekki jafn mikið mál og fólk heldur. Þessi uppskrift er einstaklega girnileg og kemur frá Lólý.is 
Það sem þarf til pastagerðar:
600 gr hveiti
6 egg

Setjið hveitið í skál og gerið gat í miðjuna á því. Brjótið eggin í miðjuna á hveitinu og hrærið eggjunum saman með gaffli. Þegar þið eruð búin að blanda eggjunum saman þá er málið að setja puttana í þetta og hræra saman hægt og rólega hveitinu og eggjunum, takið alltaf smá af hveitinu og blandið við eggin þangað til þetta er allt vel blandað saman. Nú er bara að hnoða deigið saman sem krefst svolítillar vinnu og mikillar ástar og þá fáið þið glansandi fallegan deig bolta.
Það er líka hægt að setja hveitið og eggin í matvinnsluvél og blanda því saman þangað til það verður eins og brauðmylsna og hella því svo á borðið og hnoða vel saman, það skiptir miklu mál að hnoða vel saman til að fá glútenið  af stað í deiginu og þegar það gerist fær maður mjúkt og gott pasta sem verður al dente við suðu en ekki lint.

Ykkur er alveg óhætt að beita svolítilli hörku þegar þið eruð að hnoða – deigið þolir það vel. Svo er bara að rúlla deiginu saman í eina kúlu, vefja hana inn í filmu og kæla í smá stund í ísskápnum svo það sé auðveldara að rúlla það þunnt út. Þegar þið rúllið því út getið þið annað hvort gert það með kökukefli eða pastavél, en aðal atriðið er að rúlla bara lítinn hluta af deiginu í einu frekar en marga stóra hluta. Það er svo miklu auðveldara að gera lítið í einu til að fá það eins þunnt og mögulegt er.
Það þarf bara að passa upp á að um leið og búið er að rúlla það út þá verður maður að skera það strax í það form sem maður vill hafa það.

Þannig að þegar ég geri ravioli þá passa ég upp á að á meðan pastað er í ísskápnum þá geri ég fyllinguna þannig að hún sé tilbúin þegar ég fer að rúlla það út og þannig get ég sett fyllinguna strax á, rúlla út tvær lengjur af pasta og set fyllinguna ofan á aðra þeirra með svona eins og nokkurra sentimetra millibili, pensla endana með eggi og legg svo hina lengjuna yfir og sker í það form sem ég vill hafa á pastanu,

Fylling:
300 gr soðið spínat
600 gr ricotta ostur
smá múskat (nutmeg)
salt og pipar eftir smekk
1 eggjarauða
2 msk rifinn parmesan ostur

Skerið spínatið þegar búið er að sjóða það og passið upp á að kreista allt vatn úr því. Blandið síðan öllu saman í skál þangað til blandan er mjúk og góð, en smakkið til svo að þetta verði kryddað að ykkar smekk.

Svo er bara að gera eins og ég lýsi hér að ofan og sjóða pastað í vatni með 1 kjúklingatening en þegar suðan er komin upp þá smellið þið pastanu í pottinn og passið að það þarf bara svona eins og 3 mínútur í suðu.

Þegar ég geri svona pasta þá finnst mér best að sjóða smjör í potti með annað hvort ferskri basiliku eða salvíu og þá læt ég smjörið aðeins verða brúnt og eins er gott að skella svona eins og einu pressuðu hvítlauksrifi út í.

Hellið smá smjöri yfir hvern skammt af pasta og dreifið parmesan yfir og njótið svo vel elskurnar – þetta er bara best í heimi.

Endilega smellið like-i á Facebook síðu Lólý

loly

SHARE