Heitt bað eins og 30 mínútna göngutúr

Vísindamenn halda því nú fram að heitt bað geti verið jafn gagnlegt fyrir heilsu þína og að fara í 30 mínútna göngutúr.

Hópur vísindamanna við Loughborough háskóla í Englandi gerði próf á 14 mönnum. Annars vegar voru mennirnir látnir fara í klukkustunda langan hjólatúr og hinsvegar klukkustunda langt bað í 40° heitu vatni. Mældar voru hitaeiningarnar sem einstaklingarnir brenndu við hvora iðju fyrir sig.

Mennirnir brenndu fleiri hitaeiningum í hjólatúrnum en við það að liggja í heitu baðinu, brenndu þeir um 130 hitaeiningum sem samsvarar því að ganga í hálftíma. Brennsla hitaeininganna verður vegna hækkandi líkamshita.

 

Vísindamennirnir mældu líka blóðsykur þátttakenda rannsóknarinnar í 24 tíma eftir hverja tilraun. Þeir komust að því að blóðsykurinn var um 10% lægri hjá mönnunum eftir baðið en eftir hjólatúrinn.

 

 

 

Þetta segir okkur það að ef þú kemst ekki á æfingu ættirðu ekki að örvænta heldur láta renna í heitt og gott bað og slaka á.

SHARE