Hjartasteinn – Viltu leika í kvikmynd?

Framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures leitar nú að ungum leikurum fyrir kvikmyndina Hjartasteinn eftir Guðmund Arnar Guðmundsson sem áætlað er að fari í tökur í ágúst á næsta ári. Strákar á aldrinum 11-17 ára og stelpur á aldrinum 12-17 eru hvött til að sækja um en áheyrnarprufur verða haldnar í nóvember.

 

Main Still 135x200smallweb

Leit stendur yfir að leikurunum fyrir kvikmyndina Hjartasteinn 

Hjartasteinn gerist yfir sumar í litlu sjávarþorpi á Íslandi og fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina. Þór er hrifinn af Betu, sætu stelpunni í þorpinu, en þorir ekki að sýna áhuga sinn. Kristján besti vinur Þórs á auðvelt með að tala við stelpur og þegar hann kemur auga á erfiðleika Þórs, ákveður hann að koma vini sínum til aðstoðar. Þegar málin þróast Þór í hag skapast óvænt spenna á milli drengjanna sem leiðir til óafturkræfanlegra atburða.

 

Gudmundur Director_small

Guðmundur Arnar Guðmundsson er handritshöfundur og leikstjóri 

 

Guðmundur Arnar Guðmundsson er bæði handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar. Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd en fyrr á árinu hlaut verkefnið Warnier Posta verðlaunin á samframleiðslumarkaði Kvikmyndahátíðar Hollands og einnig hlaut Guðmundur þann heiður að vera valinn með Hjartastein í fjögurra mánaða leikstjórnarsmiðju Cannes kvikmyndahátíðarinnar. Í Hjartasteini sækir Guðmundur innblástur í sína eigin reynslu frá því að hann ólst upp að hluta í sjávarþorpi út á landi og er umhugað um að birta bíógestum á öllum aldri margslunginn reynsluheim unglinga í stórbrotnu umhverfi Íslands.

Guðmundur er þekktur fyrir stuttmyndirnar Hvalfjörður og Ártún sem unnið hafa til fjölda verðlauna á virtum hátíðum víða um heim en Hvalfjörður er t.a.m. tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðalaunanna 2014 sem veitt verða næstkomandi desember.

Áhugasömum er bent á að sækja um með því að senda 1-3 nýlegar ljósmyndir og eftirfarandi upplýsingar: fullt nafn, aldur og hæð, að auki símanúmer og nafn forráðamanns á netfangið casting@joinmotionpictures.com fyrir 15. nóvember. Nánari upplýsingar má finna á
www.facebook.com/heartstonethemovie þar sem hægt verður að fylgjast með verkefninu.

SHARE