HK styður við bak liðsmanns síns – Glímir við erfið veikindi

HK-ingar eru svo sannarlega að gera góðverk um þessar mundir en liðsmaður þeirra greindist nýverið með krabbamein. Á síðu sinni birtu þeir þetta:

Á fimmtudaginn er síðasti leikur Íslandmeistara HK fyrir jólapásu en þá koma FH-ingar í heimsókn í Digranes og hefst leikurinn kl. 19:30

Stjórn handknattleiksdeildar hefur ákveðið að allur ágóði af miðasölu á leiknum renni til Bjarka Más Sigvaldasonar leikmanns meistaraflokks karla í fótbolta hjá HK en Bjarki glímir við erfið veikindi eftir að hafa á dögunum greinst með krabbamein.

Miðaverð verður eins og áður 1.000kr en við hvetjum fólk að sjálfsögðu til að leggja söfnuninni lið með frjálsum framlögum.

Einnig hefur verið stofnaður söfnunarreikningur fyrir Bjarka  kt. 630981-0269 reikn. 536-14-400171

Nú er um að gera að skella sér á flottan handboltaleik þar sem strákarnir eiga ennþá möguleika á sæti í Deildarbikarnum og styrkja um leið gott málefni.

Við segjum bara ALLIR Í DIGRANES og ÁFRAM HK!!

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here