
John Mellencamp er pabbi Teddi Mellencamp (44) en hún varð þekkt fyrir að vera ein af húsmæðrunum úr „The Real Housewives of Beverly Hills“. Við sögðum ykkur frá því að hún greindist fyrst með sortuæxli og svo með krabbamein í heila.

Á miðvikudaginn, 14. janúar, kom John fram í þætti Joe Rogan og sagði frá því hvernig Teddi gengur. Hann sagði að hún væri virkilega veik: „Þetta er ekki fokk*** gaman. Hún er með krabbamein í heilanum og er að þjást mikið núna.“
Þessar fréttir hafa komið mikið á óvart því Teddi deildi því í október 2025 að 4. stigs krabbameinið væri „farið“.
„Bara til að gefa ykkur smá fréttir, þá fór ég í læknisskoðun í gær og á þessum tímapunkti finnst ekkert krabbamein,“ sagði hún við samþáttastjórnanda sinn, Dolores Catania, í hlaðvarpinu Two T´s in a Pod, þann 3. október. „Þegar þeir sögðu mér það var ég í sjokki, var alveg dofin,“ sagði Teddi. „Ég mun alveg eiga daga þar sem ég er lasin og svoleiðis því ég er enn í meðferðum, svo ég er að berjast áfram.“
Sjá einnig:
- Hjúkrunarfræðingur sem myrti smábörn – „Hún er stórskrýtin!“

- Yngstu fórnarlömb Jeffrey Epstein 9 ára

- Sarah Ferguson bauð Jeffrey Epstein í fimmtugsafmæli Andrews

- Sarah Ferguson er á götunni

- „Hún þjáist mikið núna!“ – Er með 4. stigs krabbamein í heila

- Brooklyn Beckham vill engin samskipti við foreldra sína















