Hversu oft þarftu að þrífa?

Samkvæmt mínum leitarniðurstöðum eru mjög misjafnar skoðanir á því hversu oft þarf að þrífa ýmsa hluti og staði heimilissins. En oft á tíðum er mjög hjálplegt að skoða í hvað maður setur tímann sinn og hvernig maður getur einfaldað þrifin.

Mér finnst persónulega mjög leiðilegt að þrífa og oft ansi erfitt að finna byrjunarreitinn og hvenær maður á að hætta en með því að skoða hvað þarf að þrífa og gera í hverri viku og á hverjum degi er hægt að setja niður þægilegt plan.
Því er sniðugt að skipta verkunum sem þarf að gera  vikulega eða mánaðarlega niður á ákveðna daga og bæta því alltaf einum til tveimur hlutum á daglega þrifalistann.

Hér eru listar sem segja hversu oft maður á að þrífa sem að ég fann á síðunni https://www.dailymail.co.uk/femail/article-3712141/Are-cleaning-Experts-reveal-house-washed.html

Ert þú svona dugleg/ur að þrífa og ert þú sammála því sem að er talið hér upp?

SHARE