Indian butter kjúklingur

Hún Ragnheiður hjá Matarlyst kann sko heldur betur að búa til góðgæti. Þessi uppskrift slær í gegn í hvaða matarboð sem er.

Hráefni

6 msk smjör
900 g kjúklingabringur
1 laukur skorinn niður
3 hvítlauksrif pressað
1 msk ferskt engifer raspið niður
1 msk gram malasa
1 tsk chili duft
1 tsk cumin
¼-½ tsk cayanne pipar
500 ml rjómi
375 ml tómat passata
Salt og pipar
Maizena Sósujafnari brúnn
Jafnvel 1 til 2 msk sykur ef vill, sett út í í lokin setur punktinn yfir iið.

Aðferð

Skerið kjúklingabringur í bita
Setjið 2 msk af smjöri á pönnu, bræðið, brúnið kjúklinginn í smjörinu á öllum hliðum ekki fullelda. Setjið aftur 2 msk smjör á pönnuna steikið laukinn á miðlungshita í ca 3 mín eða þar til hann verður mjúkur, bætið út á pönnuna hvítlauk, engifer, gram malasa, chili dufti, cayanne pipar og cumin steikið saman í u.þ.b 45 sek.
Bætið þá tómat passata út á og blandið vel saman. Látið blönduna malla saman í u.þ.b 5 mín maukið með töfrasprota. Hellið rjómanum saman við, hrærið saman um stund, bætið því næst kjúklingnum út á pönnuna passið að hella allan vökva af kjúllanum látið malla í 15 mín á meðal hita. Þykkið með sósujafnara. Smakkið til með salti og pipar og jafnvel 1-2 msk sykur ef ykkur finnst þess þurfa.
Bætið í lokin 2 msk af smjöri út á pönnuna, látið bráðna saman við réttinn.

Meðlæti

Rótí brauð
Grjón elduð á hefðbundinn hátt
Limona skorin í báta
Hvítlauks og chili olía

Rótí brauð

4 bollar hveiti
2 msk lyftiduft
2 msk sykur
2 tsk salt

Vatn þar til deigið samlagast vel

Aðferð

Blandið þurrefnunum saman í skál, bætið vatni út í þurrefnin þar til deig myndast, og eða hveiti sett út í þar til deigið sleppir vel hendi og hefur samlagast vel. Mótið litlar kúlur, fletjið þær út þunnt og steikið á olíuborinni heitri pönnu um stund og snúið við og steikið hina hliðina í örskamma stund, passið að brenna ekki brauðið. Penslið hvítlauksolíu á brauðið…. (Val)

Mér finnst afar gott er að bera hvítlauks og chili olíu fram með réttinum, og setja smávegis skvettu út í skálina mína.

SHARE