Instagram dagsins: Veist þú hvaða blómarós þetta er?

Instagram er sívaxandi samskiptamiðill sem flestir eru farnir að þekkja og nota hér á landi. Á Instagram setur fólk inn myndir af hinu og þessu og sjálfu sér auðvitað líka. Margar stjörnur nota Instagram mikið og því höfum ákveðið að byrja með lið hjá okkur sem mun bera það einfalda heiti „Instagram dagsins“ og munum við birta skemmtilegar og áhugaverðar myndir sem við rekumst á, á Instagram.

Hún.is er auðvitað á Instagram og þú getur „followað“ eða fylgst með okkur með því að smella á þennan hnapp Instagram

 

Fyrsta Instagram-mynd dagsins er af lítilli 10 ára stúlku í sumarsólinni. Þetta er engin önnur en Ellý Ármanns sem sést hérna og segir hún okkur að þessi mynd hefði verið tekin, þegar hún var nýflutt í Árbæinn, árið 1980. „Þetta er árið sem ég byrjaði í Árbæjarskóla. Æðislegur tími,“ segir Ellý okkur.

 

SHARE