Íslenskur fatahönnuður vekur athygli – Myndir

Íslenskur fatahönnuður Anita Hirlekar hlaut verðlaun fyrir fatalínu sína sem var hluti af meistaranámi hennar frá Central St. Martins í London og er afraksturinn nú til sýnis í heimabæ hennar á Akureyri. 

Það má með sanni segja að Anita Hirlekar hafi komið inn á sjónarsviðið með stæl eftir útskrift úr fatahönnun og textíl frá hinum virta skóla Central St. Martins í London. Hún hlaut hin svokölluðu “Fashion Special Price” verðlaun í fatahönnunarkeppni fyrir nýútskrifaða hönnuði þann 13. júlí sl. Ekki nóg með það heldur komst hún áfram í úrslit í annarri keppni þar ytra sem nefnist “International Talent Support.”  Að vonum er þetta mjög mikill heiður og viðurkenning fyrir Anitu sem á eflaust eftir að opna henni fjölmörg tækifæri á sviði fatahönnunar í framtíðinni.

Fatatalína Anítu, sem nú er til sýnis í Gallerí Hvítspóa á Akureyri, einkennist af listrænum glamúr með áherslu á óvenjulegar litasamsetningar, sterkan persónuleika og hreinar kvenlegar línur.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér nánar föt Anítu er bent á heimasíðu hennar HÉR.

 

Frétt af heimasíðu Handverks og hönnunar 

 

 

 

SHARE