
Maður hefði nú haldið að fólk væri orðið vant því að sjá geirvörtur hér og þar, þar sem það verður sífellt algengara að sjá konur í bolum og kjólum án þess að vera í brjóstahaldara. Það kom því á óvart þegar ég sá þessa frétt frá Ameríkunni þar sem allt virtist hafa farið á hliðina eftir Gotham-verðlaunahátíðina sem haldin var 1. desember 2025 í New York.
Netheimar fóru semsagt á hliðina vegna þess að Kate Hudson var í kjól sem þótti sýna of mikið en hún klæddist hvítum satínkjól og má greinilega sjá geirvörtur hennar í gegnum efnið.

Athugasemdir bárust á myndir og myndbönd af þessum viðburði:



Sama hvað fólk segir þá er Kate, að mínu mati, alltaf glæsileg og ef hún vill sýna geirvörtur sínar þá má hún það svo sannarlega. Hvað finnst ykkur?

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














