Kim Kardashian er kannski ekkert rosalega klár á Photoshop

Kim Kardashian á það til að ,,fótósjoppa” myndir af sér áður en hún smellir þeim inn á helstu samfélagsmiðla. Myndvinnslan er kannski ekki alltaf upp á tíu, eins og Mirror greindi frá á dögunum.

Sjá einnig: Kim Kardashian birti óvart ,,ófótósjoppaða“ mynd af sér

Kim-Kardashian

Á þessari mynd þykir líklegt að Kim hafi verið að eiga við mittið á sér  – hurðin sem sést í bakgrunni bjagaðist eitthvað við myndvinnsluna.

Kim-Kardashian (1)

Þessi mynd vakti mikla athygli á sínum tíma en það er eins og það vanti á Kim aðra höndina.

Kim-Kardashian (2)

Myndina í speglinum tók Kim sjálf, hin myndin er tekin af ljósmyndara stuttu síðar. Mittið á Kim er talsvert mjórra á myndinni sem hún tók sjálf.

Kim-Kardashian (3)

Eitthvað hefur Kim fiktað við mittið á sér á myndinni sem er til vinstri.

SHARE