Kostir þess að nota C-vítamín serum á húðina

Ef þú fylgist vel með nýjungum í húðumhirðu hefurðu eflaust heyrt um C-vítamín serum.

C-vítamín er talið eitt besta innihaldsefnið á markaðnum til að sporna við öldrun húðarinnar og viðhalda sléttu, jöfnu og gljáandi yfirbragði.

Þó að þú sért líklega að fá C-vítamín í mataræði þínu, þá er engin leið til að tryggja að það fari í húðina. Notkun serum-a og annarra húðvara er beinasta leiðin til að koma efnunum inn í húðina.

Kostir við að nota C-vítamín á húðina:

  • Dregur úr hrukkum
  • Varðveitir kollagen og eykur framleiðslu þess
  • Það gefur húðinni ljóma
  • Jafnar húðlitinn
  • Dregur úr litabreytingum
  • Það getur dregið úr baugum
  • Það hjálpar til við að gera húðina stinnari
  • Ver húðina gegn sólarskemmdum
  • Það getur róað húðina eftir sólbruna
  • Hefur græðandi áhrif

Ef þú ert að velta því fyrir þér hversu oft þú eigir að nota C-vítamín serumið, þá er svarið bæði kvölds og morgna, eftir hreinsun á húðinni og tóner. Ein rannsókn mælir jafnvel með því að nota C-vítamín serum á átta klukkustunda fresti, eða tvisvar á dag til að ná hámarki verndar.

C-vítamín verndar líka húðina fyrir utanaðkomandi álagi eins og útblæstri frá bílum, sígarettureyk og þvíumlíku.

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur þó þú gleymir að bera á þig í eitt og eitt skipti. Ólíkt sólarvörn, rakakremi eða olíum er ekki hægt að þurrka C-vítamín svo auðveldlega af eða þvo það af húðinni.

Hvað þarf að hafa í huga þegar keypt er C-vítamín serum:

  • Þarf að innihalda 10-20% L-askorbínsýra
  • Innihaldsefni: L-askorbínsýra, tocopherol (vitamin E) eða glutathione og ferulic sýru
  • Umbúðir: Dökkar eða litaðar glerflöskur með loftþéttum skammtara
SHARE