Linda Péturs lokar dyrum Baðhússins fyrir fullt og allt

Linda Pétursdóttir hefur lokað dyrunum að Baðhúsinu fyrir fullt og allt og lagði reksturinn formlega niður starfsemi sína í hádeginu í dag, þann 10 desember 2014.

Ástæðuna segir Linda einfalda; ófullnægjandi húsnæið sem hafi verið afhent of seint og á alltof löngum tíma og sífelldar truflanir af hálfu iðnaðarmanna með hamra, borvélar og stórvirkar vinnuvélar sem skapi alls ekki andrúmsloft afslöppunar og dekurdaga sem eigi að einkenna stað eins og Baðhúsið.

Þetta og fleiri samverkandi þættir hafi gert að verkum að rekstur Baðhússins hafi ekki gengið upp á nýjum stað í Smáralind. Segist Linda hafa reynt að fara samningaleið fram á síðustu stundu en að henni hafi orðið ljóst í dag að Baðhúsið væri komið á endastöð.

Í opinberri yfirlýsingu sem Linda gaf út í dag á Facebook segir hún jafnframt:

Ég get sagt ykkur frá dýpstu hjartarótum að ég er eyðilögð yfir þessum málalokum, enda hefur Baðhúsið verið mér hjartans mál frá stofnun þess. Eitt það síðasta sem ég gerði áður en ég lokaði dyrunum, var að semja við Sporthúsið um að allir viðskiptavinir Baðhússins sem eiga kort í líkamsrækt geta nýtt kortin sín þar út gildistímann.

Ég set hér með fréttatilkynningu sem ég sendi á fjölmiðla áðan og vona að hún útskýri hvað hefur gengið á síðustu misseri.

Guð – gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,

kjark til að breyta því sem ég get breytt

og vit til að greina þar á milli.

Linda

Hér má lesa fréttatilkynningu þá er Linda gaf út í dag í heild sinni:

Baðhúsið í Smáralind lokar:

ÚTILOKAÐ AÐ REKA BAÐHÚS Í HÁLFKLÁRUÐU HÚSNÆÐI UNDIR DYNJANDI HAMARSHÖGGUM OG STARFANDI IÐNAÐARMÖNNUM

Baðhúsið sem Linda Pétursdóttir hefur rekið um árabil hætti rekstri á hádegi í dag. Rekja má erfiðleikana til þess að húsnæði Baðhússins í Smáralind var afhent mun síðar en upphaflega var áætlað og var og er enn í ófullnægjandi ástandi.

„Því miður hefur þetta verið sorgarsaga í Smáralind frá upphafi til enda í um eitt ár. Við lokuðum húsnæðinu í Brautarholti í desember í fyrra með loforð frá Reginn upp á vasann um að við gætum opnað fyrir jólin 2013. Það gekk ekki eftir, en loforð kom í staðinn um opnun um áramót, sem stóðst ekki heldur. Við misstum því strax í byrjun af mikilli jólasölu og raunar af öllum viðskiptum í janúar að auki og eins og allir sem stunda líkamsrækt vita, skiptir janúar höfuðmáli í þessum rekstri en þá fer bróðurpartur allrar sölu næsta árs fram,“ segir Linda Pétursdóttir, eigandi Baðhússins, sem segir að þegar loksins hafi tekist að opna um miðjan janúar hafi húsnæðið verið allt annað en tilbúið og aðeins afhent í hlutum langt fram á vor.

„Hingað komu viðskiptavinir okkar í hálfklárað húsnæði með iðnaðarmenn andandi ofan í hálsmálið á þeim og við þurftum í raun að hefja reksturinn á sífelldum afsökunum, afsláttar- og endurgreiðslum og uppsögnum kvenna sem skiljanlega voru ekki sáttar við stöðu mála. Rekstrargrundvellinum var því kippt undan okkur strax í byrjun og ekkert sem ég gat gert.“

Linda segir að ástandið hafi lítið skánað eftir því sem leið á árið.

„Hér var allt hálfklárað og konur sem komu í jógatíma, í lúxus dekurmeðferðir eða einfaldlega til afslöppunar, þurftu að vera hér undir dynjandi hamarshöggum, hávaða í höggborvélum og vinnuvélum, nokkuð sem fær ekki nokkurn mann til að slaka á. Um þverbak keyrði svo þegar vinna hófst við byggingu turnsins við Smáralind sem þýddi gríðarlegar truflanir vegna byggingarframkvæmda og konur hafa hrökklast héðan nánast daglega auk þess sem varla hefur verið hægt fyrir starfsfólk að sinna sínu hlutverki vegna hávaða og áreitis. Við þessar aðstæður er ekki hægt að reka Baðhúsið,“ segir Linda.

Hún segir að leigusali hafi ekki viljað taka tillit til þess tjóns sem ítrekaðar seinkanir á afhendingu, ófullnægjandi ástand húsnæðis og mikill hávaði vegna framkvæmda hafi valdið rekstrinum.

„Ég er miður mín yfir að þurfa að taka þessa ákvörðun en ég hef nú þegar lagt allt mitt í fyrirtækið í þeirri trú að húsnæðið myndi komast í fullnægjandi ástand tímanlega þannig að hér væri hægt að reka heilsulind fyrir konur. Þetta eru sorgleg tímamót og mér líður eins og ég hafi verið plötuð og fengin hingað á fölskum forsendum. Mér þykir þetta ákaflega miður einkum vegna frábærs starfsfólks Baðhússins og viðskiptavina minna til margra ára. Ég reyndi fram á síðustu stundu að ná samningum sem hefðu getað leyst málið en nú í morgun varð mér ljóst að það yrði ekki og þá tók ég þá afar erfiðu ákvörðun að loka dyrunum að Baðhúsinu.“

Allir viðskiptavinir Baðhússins sem eiga kort í líkamsrækt munu geta nýtt kortin út gildistímann hjá Sporthúsinu sem er í næsta nágrenni Baðhússins.

Tengdar fréttir: 

Að vera á tímamótum – við ætlum að fylgjast með þessum konum

Matarræði og heilsa – Áhugaverðir fyrirlestrar – Myndband

Hvað áttu að borða mikið af kolvetnum á dag til að léttast?

SHARE