![loftbelgur](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2013/02/loftbelgur.jpg)
Það var hreint kraftaverk að nokkur skyldi sleppa lifandi frá slysinu þegar kviknaði í loftbelgnum við Luxor í Egyptalandi þriðjudaginn 26. febrúar. Við birtum mynband af loftbelgnum hrapa sem þú getur séð hér. Michael Rennie var á ferð í Egyptalandi ásamt konu sinni og höfðu þau farið í skoðunarferð til Luxor í loftbelg. Eldur gaus upp í loftbelgnum þegar hann rakst á rafmagnslínu og Michael tókst að stökkva út ásamt flugmanninum. Þeir komust einir af.
![Michael Rennie was airlifted to hospital after her survived the blaze which killed his wife Yvonne](http://i.dailymail.co.uk/i/pix/2013/02/27/article-2285171-184EEFCC000005DC-752_634x357.jpg)
![Michael Rennie is in hospital in Cairo after the balloon ride went tragically wrong, killing his wife Yvonne](http://i.dailymail.co.uk/i/pix/2013/02/26/article-2284548-184F0343000005DC-648_306x423.jpg)
![Michael Rennie is in hospital in Cairo after the balloon ride went tragically wrong](http://i.dailymail.co.uk/i/pix/2013/02/26/article-2284548-184F0DF3000005DC-489_306x423.jpg)
Vitni að þessum atburði heyrðu sprengingu og sáu mikinn reyk og svo féll belgurinn til jarðar.
Fleiri farþegar stukku og reyndu þannig að bjarga sér en voru allir látnir þegar björgunarmenn komu að þeim.
Fólkið sem lenti í þessu slysi var frá Bretlandi, hafði keypt sér útsýnisferð með loftbelg til Luxor hjá ferðaskrifstofu Thomasar Cook. Ferðaskrifstofan hefur hætt að selja fólki þessar ferðir.
Sérfræðingur um loftbelgjaflug segir að öryggi í þessum útsýnisferðum í Egyptalandi sé mjög ábótavant og sé örygginu fórnað fyrir lágt verð.
![Bodies: Medical workers in Cairo with the bodies of those who were killed in the tragic accident](http://i.dailymail.co.uk/i/pix/2013/02/27/article-2285171-1851FB8C000005DC-699_634x486.jpg)
![Solemn: The bodies were transported to Egypt's capital by plane overnight](http://i.dailymail.co.uk/i/pix/2013/02/27/article-2285171-1851FBBB000005DC-93_634x425.jpg)
![Mission: A worker is grim-faced as he carries a stretcher holding the body of one of the victims](http://i.dailymail.co.uk/i/pix/2013/02/27/article-2285171-1851FBDE000005DC-114_634x403.jpg)
Sjúkraflutningamenn bera lík af látnum.