Lyfjaverð til einstaklinga breytist 4. maí – Hefur þú kynnt þér málið?

Margir hafa verið að velta fyrir sér hvað hinar nýju reglur um greiðslur á  lyfjum hafa í för með sér en breytingarnar taka gildi 4. maí, næstkomandi. Það vekur athygli hversu hljótt þetta hefur farið því Alþingi samþykkti þessar breytingar í júní 2012.

 

Á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands eru þessar upplýsingar:

Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna kaupa á lyfjum tekur gildi 4. maí 2013 í samræmi við breytingar á lögum sem Alþingi samþykkti þann 1. júní 2012. Meginmarkmiðið með lögunum er að auka jafnræði milli einstaklinga óháð sjúkdómum og draga úr lyfjakostnaði þeirra sem þurfa að nota mikið af lyfjum.

Sanngjarnara kerfi – aukið jafnræði

Það sem einkennir eldra greiðsluþátttökukerfi er að kostnaður þeirra sem nota lyf að staðaldri og þurfa jafnvel á mörgum lyfjum að halda, getur orðið mjög hár vegna þess að ekki er hámark á lyfjakostnaði einstaklinga. Þá er greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) mismikil eftir lyfjaflokkum sem skapar ójafnræði milli einstaklinga með mismunandi sjúkdóma.

Ávinningur nýja kerfisins er meðal annars:

  • Jafnræði einstaklinga eykst.
  • Komið er til móts við þá sem hafa mikil útgjöld vegna lyfja.
  • Kerfið er einfaldara en eldra kerfi.

Þrepaskipt greiðsluþátttaka

Nýja kerfið byggir á þrepaskiptri greiðsluþátttöku þar sem hver einstaklingur greiðir hlutfallslega minna eftir því sem lyfjakostnaður hans eykst innan tólf mánaða tímabils. Í fyrsta þrepi greiðir einstaklingurinn lyf að fullu, í öðru þrepi greiðir hann 15% af verði lyfja og í þriðja þrepi greiðir hann 7,5%.

Öll lyf sem SÍ taka þátt í að greiða (þar með talin lyf sem einstaklingur hefur fengið samþykkt lyfjaskírteini fyrir) verða felld inn í greiðsluþrepin. Þau lyf sem SÍ taka ekki þátt í að greiða, falla utan greiðsluþrepanna. Þegar lyfjakostnaður hefur náð ákveðnu hámarkigetur læknir sótt um að SÍ greiði lyf að fullu það sem eftir er af tímabilinu að uppfylltum tilteknum skilyrðum 

Þeir sem hafa haft mikinn lyfjakostnað greiða því almennt minna fyrir lyf í nýju kerfi. Þeir sem þurfa sjaldan að kaupa lyf munu almennt greiða meira en áður.

Tólf mánaða greiðslutímabilið hefst við fyrstu lyfjakaup einstaklingsins. Ef hann kaupir t.d. lyf í fyrsta sinn 15. maí 2013 þá lýkur tímabilinu 15. maí 2014. Nýtt tímabil hefst þegar viðkomandi kaupir lyf í fyrsta sinn eftir að framangreindu tímabili lýkur.

Áður niðurgreidd lyf munu falla inn í kerfið

Lyf sem ekki hefur verið greitt fyrir í núverandi kerfi eru lyf sem hafa svokallaða stjörnumerkingu í lyfjaverðskrá t.d. glákulyf, sykursýkislyf og geðrofslyf. Einnig hafa einstaklingar með parkinson, flogaveiki og Sjögren ekki greitt fyrir lyf sín ef þeir hafa fengið útgefið lyfjaskírteini. Þessi lyf verða felld inn í kerfið og einstaklingar taka þátt í kostnaði þeirra.

Lyfjareiknivél reiknar út lyfjakostnað

Sett hefur verið fram Lyfjareiknivél hér á vef SÍ. Í henni er hægt að reikna út lyfjakostnað út frá gefnum forsendum. Þeir sem vilja skoða hvernig lyfjakostnaður þróast í nýju kerfi eru hvattir til að kynna sér reiknivélina.

Hægt verður að skoða stöðu lyfjakaupa í Réttindagátt

í Réttindagátt – þjónustusíðu einstaklinga verður hægt að sjá í hvaða greiðsluþrepi einstaklingur er staddur hverju sinni og yfirlit yfir lyfjakaup eftir að nýtt kerfi tekur gildi. Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum, íslykli island.is eða veflykli skattyfirvalda.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here