
Það hefur ekki farið framhjá neinum að mikil umræða hefur verið um öryggi ferðamanna í Reynisfjöru, í kjölfar þess að barn var hrifsað af briminu fyrir skemmstu og lést af þeim völdum.
Þetta myndband var tekið á sunnudaginn þar sem ferðamaður var að baða sig í Reynisfjöru. Fólk sem var á vettvangi tók þetta myndband upp af manninum.
Fólkið hafði reynt að kalla á manninn en hann heyrði ekki í þeim en þau töluðu við hann eftir að hann kom uppúr sjónum. Maðurinn kvaðst ekki hafa séð skiltin eða ljósin sem vara við því að fara í eða of nálægt sjónum. Hann hafði að auki aldrei heyrt um að barn hafi nýlega dáið í þessari sömu fjöru.

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














