![Screen shot 2012-12-12 at 19.54.00](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2012/12/Screen-shot-2012-12-12-at-19.54.00.png)
María Birta sem er með verslunina Manía á Laugaveginum varð fyrir því óhappi á dögunum að upp kom eldur i versluninni. Hún brá því á það ráð að skella upp markaði í Kringlunni.
Aðrir verslunareigendur hófu þá upp raust sína og kvörtuðu undan þessu af ástæðum sem hafa ekki komið fram og hafa látið úthýsa Maríu Birtu úr Kringlunni.
Í samtali við Maríu Birtu sagði hún:
Ég er í algjöru áfalli.. Húsfélagið fékk á sig skaðabótakröfuhótun afþví að vöruverðið mitt sé svo lágt að ég sé að láta aðra líta illa út.
Ég þarf að flytja út á morgun!
Ég fór hreinlega bara að gráta fyrir framan manninn sem sagði mér þessar hræðilegu fréttir.
Ég er núna bara aftur í húsnæðisleit.
Við hjá hun.is vonumst til þess að hún finni húsnæði sem allra fyrst og bendum þeim sem vita um húsnæði handa henni á að hafa samband við hana á Facebook.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2022/01/Screenshot-2022-01-05-at-12.11.47.jpg)
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.