Mega ekki taka síma af nemendum grunnskóla

Kennarar mega ekki taka snjallsíma af barni í grunnskóla samkvæmt frétt sem birtist á Rúv.is. Sagt er frá nemanda í Oddeyrarskóla á Akureyri sem var að nota síma sinn, án leyfis, í miðri kennslustund. Kennarinn ætlaði því að taka símann í sína vörslu og skila honum til barnsins í lok dags, í samræmi við skólareglurnar. Nemandinn vildi hinsvegar ekki láta símann af hendi og benti á að umboðsmaður barna teldi að kennurum væri óheimilt að taka síma eða aðrar persónulegar eigur af nemendum, án samþykkis þeirra og vísaði hann í nýlegt mat umboðsmanns.

Margir foreldrar og kennarar hafa af því áhyggjur að ofnotkun snjallsíma sé farin að hafa truflandi áhrif á skólastarf. Því hafa víða verið settar reglur um símnotkun í kennslustofum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu umboðsmanns en þar segir að börn njóti eignaréttar eins og aðrir.

SHARE