Megan Fox skilin við eiginmann sinn

Megan Fox (29) og Brian Austin Green (42) eru skilin eftir 11 ára ástarsamband en sambandsslitin áttu sér stað fyrir um 6 mánuðum. Saman eiga þau Noah (2) og Bodhi (18 mán).


2B7E64CA00000578-3203519-On_their_own_Megan_Fox_and_Brian_Austin_Green_have_reportedly_se-m-2_1439991132785

Ástæða þess að þau eru að hætta saman er sögð vera að Megan hafi verið alltof upptekin af leikferli sínum. Hún hefur verið mikið að heiman í sumar en hún hefur eytt megninu af sumrinu í New York við tökur á næstu Teenage Mutant Ninja myndinni.

Sjá einnig: Megan Fox kynþokkafull í nýrri auglýsingu – Myndband

„Þau rífast vegna ferils hennar,“ segir heimildarmaður DailyMail og bætir við: „Hún var með það á heilanum að fá hlutverk.“

Brian vill að sögn heimildarmannsins hafa Megan meira heima með honum og börnunum í Los Angeles. Megan er hinsvegar mjög sjálfstæð og gerir það sem hún vill. Einnig olli það ágreiningi að Megan byrjaði á því að láta taka heimili þeirra í gegn en fór svo bara án þess að klára það.

Sjá einnig: Megan Fox eignaðist barn fyrir átta vikum! – Myndir

Megan og Brian halda þessu öllu á vinalegum nótum vegna barnanna en eru víst búin að halda áfram í sitthvoru lagi.

Þau kynntust árið 2004 og byrjuðu fljótlega saman og giftu sig árið 2010 á Hawaii.

SHARE