
Þessi girnilega mexíkóbaka kemur frá Eldhússystrum.
Mexíkóbaka með pepperóní
Bökuskel:
3 dl hveiti
125 gr kalt smjör, í bitum
2 msk kalt vatn
Fylling:
500 g nautahakk
1 msk olía
1 laukur
1 – 2 pakkar tacokrydd
2 – 3 hvítlauksgeirar
1 dl vatn
3 tómatar
1,5 dl sýrður rjóma
3 msk majónes
2 dl rifinn ostur
1/2 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
8 pepperonisneiðar (eða að vild)
Jalapeno að vild (niðursoðinn – má líka sleppa)
Bökuskel:
Setjið hveiti og smjör í matvinnsluvél og hakkið saman (það þarf bara rétt að púlsa á vélinni í 5 – 6 sekúndur, ekki of lengi). Setjið vatnið út í og keyrið vélina í ca. 10 – 20 sekúndur þar til þetta byrjar að verða að deigi. Keflið út og setið í hringlaga bökuform. Það má líka þrýsta deiginu niður í formið í staðin fyrir að kefla það út (ég nota yfirleitt bara puttana). Látið hvíla í ísskáp í ca. hálftíma.
Fylling
Ofninn stilltur á 200 gr. Bökuskelin forbökuð í ca. 10 mínútur.
Nautakjötið steikt ásamt lauknum og hvítlauknum. Tacokryddinu bætt út í, smakkið til. Mér fannst einn poki of lítið þannig að ég bætti við hálfum poka í viðbót. Bætið vatninu við og látið malla þar til vökvinn er næstum horfinn.
Setjið hakkið í bökuskelina. Skerið tómatana niður og setjið yfir hakkið ásamt jalapeno-piparnum ( ath hann er sterkur þannig að farið varlega ef þið eruð ekki vön).
Blandið saman sýrða rjómanum, majónesinu og rifna ostinum og breiðið yfir tómatana. Setjið pepperóní og rauðlauk yfir. Bakið í 12 – 15 mínútur þar til bakan er orðin gullinbrún.

Borið fram með t.d. nachos-flögum, salati og salsasósu.
Sjá einnig:
- Matarmiklar víetnamskar pönnukökur

- Mexíkóbaka með pepperóní

- Dúbaí súkkulaði smákökur

- Smákökur með ristuðum pekanhnetum og sjávarsalti

- Pistasíurjómi

- Danskir vanilluhringir















