Mexíkóskt salat

 

Þessi dásamlega uppskrift kemur frá facebook síðunni Lifandi líf en á þeirri síðu er að finna margt dásamlegt.

Hulda Dagmar gaf hun.is leyfi til að gleðja lesendur með þessari dásemd.

 

Það er svolítið mexíkóskt yfirbragð í þessu salati.  Baunir og tómatar eru ómissandi blanda í mexikanskri matargerð og að sjálfsögðu má ekki sleppa lárperunum. Þær eru að sjálfsögðu bara dásamlegar en þegar þær blandast saman við grillað korn, þá gerist eitthvað yfirnáttúrulegt.  Ferskt kóríander er einnig eitthvað sem ekki má sleppa því það er ekki bara gert til skrauts og fyrir bragðlaukana, heldur er það stútfullt af næringu.  Það inniheldur töluvert af trefjum, A, C, E og K vítamínum og einnig kalsíum, járn, potassium og magnesíum.  

Sjá meira:Ostasalat sem aldrei klikkar

Uppskrift:

 

Þessi uppskrift er ca. fyrir fjóra:

 

1 1/2 bolli af elduðum eða 1 dós af svörtum baunum

3 stk. plómutómatar

1 stk. kornstöngull (eða korn úr dós ef hitt fæst ekki)

1 stk. rauð papríka, skorin í smáa bita

1 stk. lítill rauðlaukur, skorinn í litla bita

2 msk. kóríander, fersk og smátt skorin

1 stk. jalapeno pipar (má sleppa), ör fræ tekin og skorinn smátt

2 msk. rauðvínsedik

Safi úr 1/2 límónu

1/4 tsk. malað cumin

2 stk. lárperur, skornar í litla bita

 

  • Best er að grilla kornstöngulinn og skafa kornið af stönglinum og setja í skál.  Það gerir bæði bragðið og áferðina mun betri í salatinu. 
  • Blandið öllu vel saman í skál, látið bíða í ca. klukkustund í ísskáp og njótið.

Endilega setjið eitt like á síðuna hjá Lifandi líf 🙂

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here