Missti 3 fingur á Selfossi – Förum varlega á Þrettándanum!

Maður sem slasaðist alvarlega í flugeldaslysi á Gamlárskvöld á Selfossi er nú kominn heim af sjúkrahúsi.   Hann mun hafa misst þrjá fingur annarrar handar alveg og hluta þess fjórða.  Þá er hann nokkuð skorinn á hinni höndinni en önnur meiðsl eru minni.

Maðurinn kveðst hafa keypt flugeldinn, sem slysinu olli, hjá einkareknum sölustað í Hafnarfirði og að um hafi verið að ræða svokallaða kúlurakettu.  Hann segist hafa kveikt í rakettunni með venjubundnum hætti,  hún hafi farið upp en kúlan sjálf losnað frá og rúllað á jörðinni.  Hann hafi þá tekið kúluna upp en hún sprungið um leið með fyrrgreindum afleiðingum.

Áfram verður unnið að rannsókn málsins, m.a. með skoðun á sambærilegri vöru.

Kæru lesendur, farið þið varlega í kvöld þegar jólin verða kvödd með flugeldum.

SHARE