Mjúk piparkaka með rjómaostakremi

Nú eru eflaust flestir farnir að baka fyrir jólin og við sáum þessa uppskrift hjá Eldhússystrum og finnst hún mjög girnileg.

Mjúk piparkaka með rjómaostskremi

Hráefni
150 g smjör
8 dl hveiti
6 dl sykur
2 msk kanill
2 tsk nellika
1½ msk kardimomma
1 msk matarsódi
6 dl súrmjólk

Krem
150 g smjör, mjúkt
300 g rjómaostur
8 dl flórsykur
½ dl títuber (má sleppa)

Skreyting
Títuber (má sleppa)

Ofninn hitaður í 200 c°

Aðferð: Smjörið brætt og látið kólna aðeins. Blandið saman þurrefnunum (hveiti, sykri, kanil, nelliku, kardemommu og matarsóda) í skál. Bætið smjörinu og súrmjólkinni saman við og hrært vel saman. 

Smyrjið ofnskúffu (30×40 cm) og hellið deiginu í hana. Bakaðu kökuna neðst í ofninum í 20 mín. Látið kökuna kólna. 

Krem: Þeytið saman mjúkt smjör, rjómaost og flórsykur þar til kremið er ljóst og létt. Hrærið títuberjunum saman við og smyrjið kreminu á kökuna. Skerið í bita og skreytið með títuberjum. 

SHARE